Skýrsla IER um framkvæmdir við leikskólann Brákarborg kynnt í borgarráði í dag
5. júní 2025
Á fundi borgarráðs í dag voru kynntar niðurstöður úttektar Innri endurskoðunar og ráðgjafar á heildarferlinu í kringum byggingu leikskólans Brákarborgar.
Borgarráð samþykkti á fundi sínum þann 22. ágúst 2024 að fela Innri endurskoðun og ráðgjöf (IER) að ráðast í heildarúttekt á ferlinu í kringum byggingu leikskólans Brákarborgar í ljósi mögulegra hönnunar- og/eða framkvæmdagalla. Beiðnin fól í sér heildarúttekt á hönnun, framkvæmdum og eftirliti við framkvæmdir leikskólans og var jafnframt óskað eftir því að IER gerði tillögur að umbótum í tengslum við ferlið.
Niðurstöður voru kynntar í endurskoðunarnefnd 19. maí 2025 og á fundi borgarráðs 5. júní 2025.
Borgarráð samþykkti á sama fundi að skipaður yrði starfshópur til að vinna að umbótum í ljósi þeirra ábendinga og tillagna innri endurskoðanda sem settar eru fram í skýrslunni. Markmið með vinnu starfshópsins er að tryggja umbætur og aukna fagmennsku, öryggi og ábyrgð í framkvæmdum, draga úr kostnaðaráhættu, tryggja rekjanleika og bæta eftirlit og áhættumat með skilvirkara stjórnskipulagi.
Skýrslu IER um leikskólann Brákarborg má nálgast hér.