5. júní
Leikskólinn Brákarborg - Hönnun, framkvæmdir og eftirlit
Á fundi borgarráðs 22. ágúst 2024 var samþykkt að fela Innri endurskoðun og ráðgjöf (IER) að ráðast í heildarúttekt á ferlinu í kringum byggingu leikskólans Brákarborgar í ljósi mögulegra hönnunar- og/eða framkvæmdagalla. Í því felst heildarúttekt á hönnun framkvæmdum og eftirliti við framkvæmdir leikskólans. Jafnframt var óskað eftir því að IER gerði tillögur að umbótum í tengslum við ferlið.
Niðurstöður voru kynntar í endurskoðunarnefnd 19. maí 2025 og á fundi borgarráðs 5. júní 2025.