16. október

Samningaviðræður við rekstraraðila og lóðarhafa bensínstöðvalóða

Þann 7. maí 2024 fól borgarstjórn Innri endurskoðun og ráðgjöf (IER) að gera úttekt á aðdraganda og fyrirkomulagi samningaviðræðna Reykjavíkurborgar við rekstraraðila og lóðarhafa eldsneytisstöðva í Reykjavík sem fram fóru í kjölfar samþykktar borgarráðs þann 9. maí 2019 um fækkun bensínstöðva í borginni. Meðal þess sem IER skyldi kanna var hvort málefnaleg sjónarmið hefðu legið til grundvallar samningunum og hvort hagsmunir borgarinnar hefðu verið nægjanlega tryggðir við samningsgerðina.

IER hefur nú lokið úttekt og kynnt niðurstöður sínar fyrir endurskoðunarnefnd og borgarráði. Settar eru fram 12 tillögur að umbótum sem miða að því að bæta starfsemi og stjórnsýslu borgarinnar og byggja þær á greiningum á verklagi og framkvæmdum í tengslum við efnið.

Niðurstöður IER voru kynntar á fundi endurskoðunarnefndar þann 13. október og niðurstöðum síðan skilað til borgarráðs 16. október 2025.

IER mun framkvæma eftirfylgnikönnun vegna þessara 12 umbótatillagna á næsta ári.

Sækja efni

Ár

Tengt efni

Tengdir hlekkir